Nokia 5500 Sport - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná
ekki til.

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og
að slökkva alltaf á tækinu þar sem notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda
truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta tæki uppfyllir skilyrði um
leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða
þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sentímetra (5/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska,
beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá
líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum
tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að
ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma
kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar
sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun þráðlausra síma,
kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal samband við
lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að komast að því hvort það sé nægilega vel
varið fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á
tækinu í námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um að það
sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið
næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að 15,3 sentímetra (6 tommu) lágmarksbil sé
haft á milli þráðlauss síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun
í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og tilmæli frá
Wireless Technology Research. Þeir sem nota gangráð ættu að gera eftirfarandi:

Alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sentímetra (6 tommu) fjarlægð frá gangráðinum

Ekki að bera tækið í brjóstvasa

Hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga úr líkum á truflunum.

Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva á því og færa það í burtu.

background image

100

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita
til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt
upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð
hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má
fá hjá framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Gölluð
uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera
á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu
sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið
loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar
með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða
á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst
út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en gengið er
um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn
flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum tilmælum
sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á svæðum þar sem
yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum
á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir
á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem
sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir
þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta
fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti eru efni eða agnir, til
dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarsímtöl

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus
kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust
tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

background image

101

Neyðarsímtal:

1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé

fyrir hendi.

Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið. Neyðarnúmer eru breytileg

eftir stöðum.

4. Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en neyðarsímtal er
mögulegt. Ef tækið er með ótengdu sniði þarf að skipta um snið til að gera símaaðgerðina
virka áður en hægt er að hringja neyðarsímtal. Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók
eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur
er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en
að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum um áhrif
af útvarpsbylgjum

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra
marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar
viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda
öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin SAR
(Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru
2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru
gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum
mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en
hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná
sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá
grunnstöð. Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins
við eyra 0,50 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera
breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com

background image

102