■ Listi yfir aðgerðir
Síminn býður upp á ýmsa notkunarmöguleika sem koma sér vel í dagsins önn og
má þar nefna dagbók, tölvupóst, klukku, vekjaraklukku, XHTML-netvafra og
útvarp. Síminn er einnig með eftirfarandi aðgerðir:
• Skiptitakka til að skipta á fljótlegan hátt milli síma-, íþrótta- og tónlistarstöðu.
• Skilaboðalesara til að geta hlustað á textaskilaboð.
• Tónlistarspilara með stuðningi fyrir MP3, WMA, AAC og eAAC+ skrár.
• Íþróttastöðu sem inniheldur æfingavöktun, skrefmæli, æfingadagbók og
æfingaáætlun.
• Bankskipanir til að geta hlustað á textaskilaboð, upplýsingar um æfingar og
stjórnað tónlistarspilun.
• 2-megapixla myndavél með myndbandsupptöku.
• Raddstýrðar hringingar og raddskipanir.
• Bluetooth og innrauða tengingu.