Nokia 5500 Sport - Niðurhleðsla

background image

Niðurhleðsla

Þú getur hlaðið niður hlutum eins og hringitónum, myndum, skjátáknum
símafyrirtækis, hugbúnaði og myndinnskotum með því að nota vafra símans.

Þegar þú hefur hlaðið þeim niður eru þeir meðhöndlaðir af viðeigandi forriti
símans. T.d. er mynd sem þú hefur hlaðið niður vistuð í galleríinu.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda
sumar myndir, tónlist (þar á meðal hringitóna) og annað efni.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá aðilum
sem veita nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.