Spilun miðlunarskráa
Til að spila miðlunarskrá í RealPlayer skaltu velja Valkostir > Opna og
úr eftirfarandi:
Nýjustu skrár — til að spila miðlunarskrár sem nýlega hafa verið spilaðar.
Vistaða skrá — til að spila miðlunarskrár sem vistaðar eru í símanum eða
á minniskortinu.
41
Til að straumspila efni:
• Veldu straumspilunartengil sem er vistaður í galleríinu. Komið er á tengingu
við straumspilunarmiðlarann.
• Opnaðu straumspilunartengil á meðan þú vafrar á vefnum.
Til að straumspila efni verðurðu fyrst að setja upp stillingar fyrir sjálfgefinn
aðgangsstað þinn. Sjá „Aðgangsstaðir“ á bls. 59.
Margar þjónustuveitur fara fram á að þú notir internetaðgangsstað (IAP) sem
sjálfgefinn aðgangsstað. Aðrar þjónustuveitur leyfa notkun WAP-aðgangsstaða.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Aðeins er hægt að opna rtsp:// vefföng í RealPlayer. Það er ekki hægt að opna
http:// vefföng. Hins vegar ber RealPlayer kennsl á http-tengil sem vísar
í .ram-skrá þar sem .ram-skrá er textaskrá sem inniheldur rtsp-tengil.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því
hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.