Flash-skrár spilaðar
Veldu Valmynd > Miðlar > Flash-spil..
Til að opna möppu eða spila flash-skrá skaltu skruna að henni og styðja
á skruntakkann.
Veldu Valkostir og úr eftirfarandi stillingum:
Allur skjárinn — til að nota allan skjáinn við spilun. Til að fara aftur í venjulegan
skjá skaltu velja Venjulegur skjár. Takkarnir sjást ekki þegar allur skjárinn er
notaður en samt getur verið hægt að nota þá með því að styðja á annanhvorn
þeirra fyrir neðan skjáinn.
Passa á skjá — til að spila skrána í upphafsstærð sinni eftir að hafa súmmað hana.
Kveikt á skruni — til að geta farið með skruntakkanum um skjáinn þegar súmmað
hefur verið inn.