
■ Aðgerðir í galleríinu
Veldu Valmynd > Gallerí og möppu.
Til að gera mynd að veggfóðri skaltu velja Myndir og skruna að myndinni. Veldu
Valkostir > Nota sem veggfóður. Til að tengja myndina við tengilið skaltu velja
Setja við tengilið.

39
Til að afrita skrár í minni símans eða á minniskort skaltu skruna að skránni
eða merkja skrárnar og velja Valkostir > Skipuleggja > Afrita í minni síma eða
Afrita á minniskort.
Til að búa til myndamöppur og setja myndir í þær skaltu velja Myndir, skruna að
mynd og velja Valkostir > Skipuleggja > Ný mappa og slá inn heiti möppunnar.
Merktu myndirnar sem þú vilt setja í möppuna, veldu Valkostir > Skipuleggja >
Færa í möppu og veldu möppu.