■ Haldið utan um tengiliði
Veldu Valmynd > Tengiliðir.
Til að setja inn nýjan tengilið skaltu velja Valkostir > Nýr tengiliður. Fylltu út þá
reiti sem þú vilt og veldu Lokið.
Til að breyta upplýsingum um tengilið skaltu skruna að honum og velja
Valkostir > Breyta.
Til að velja sjálfgefin númer og heimilisföng tengiliðs skaltu velja hann og síðan
Valkostir > Sjálfvalin. Skrunaðu að sjálfgefna valkostinum og veldu Á númer.
Til að afrita nöfn og númer af SIM-korti yfir í símann þinn skaltu velja Valkostir >
SIM-tengiliðir > SIM-skrá. Skrunaðu að nöfnunum sem þú vilt afrita eða merktu
þau og veldu Valkostir > Afrita í Tengiliði.
Til að afrita símanúmer, faxnúmer, eða símboðanúmer úr tengiliðum yfir
á SIM-kortið þitt skaltu skruna að tengiliðnum sem þú vilt afrita og velja
Valkostir > Afrita > Á SIM-skrá.
Til að sjá lista yfir fast númerval skaltu velja Valkostir > SIM-tengiliðir > Í föstu
númeravali. Þessi stilling er aðeins sýnd ef SIM-kortið styður hana.