Stillingar fyrir textaboð
Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > SMS-skilaboð og úr
eftirtöldum valkostum:
Skilaboðamiðstöðvar — sýnir lista yfir allar tilgreindar skilaboðamiðstöðvar.
Skb.miðstöð í notkun — tilgreinir hvaða skilaboðamiðstöð er notuð til að senda
textaboð og sérstakar skilaboðategundir, svo sem nafnspjöld.
Umritun stafa > Fullur stuðningur — til að velja að allir stafirnir í sendum
skilaboðum birtist. Ef þú velur Minni stuðningur kunna stafir með kommum og
öðrum merkingum að breytast í aðra stafi.
33
Fá tilkynningu — Þegar stillt er á Já er staða sendra skilaboða (Bíður, Mistókst,
Skilað) birt í Tilkynningar (sérþjónusta).
Gildistími skilaboða — Ef ekki næst í viðtakanda skilaboðanna á gildistímanum
er boðunum eytt úr skilaboðastöðinni. Athugaðu að símkerfið verður að styðja
þennan möguleika. Hámarkstími — Hámarkstíminn sem símakerfið leyfir að
skilaboðin séu gild.
Skilaboð send sem — til að tilgreina hvernig skilaboðin eru send. Sjálfgefinn máti
er Texti.
Æskileg tenging — Þú getur sent textaskilaboð um venjulegt GSM-símkerfi eða
um pakkagagnatenginu, ef símkerfið styður það.
Svar um sömu miðst. (sérþjónusta) — Ef þú velur Já og viðtakandi svarar, þá eru
svarskilaboð hans send um sama númer skilaboðamiðstöðvarinnar. Ekki bjóða öll
símafyrirtæki upp á þennan valkost. Símafyrirtækið eða þjónustuveitan veitir
nánari upplýsingar um það hvaða valkostir eru í boði.