Nokia 5500 Sport - Stillingar pósthólfa

background image

Stillingar pósthólfa

Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Tölvupóstur > Pósthólf og
pósthólf.

Ef ekki er búið að tilgreina neinar pósthólfsstillingar er spurt hvort þú viljir
tilgreina þær. Tilgreina þarf gerð pósthólfsins, tölvupóstfang, miðlara fyrir
móttekinn póst, miðlara fyrir útpóst, aðgangsstað og nafn pósthólfsins.

Tengistillingar — Til að tilgreina réttar stillingar fyrir Móttekinn póstur og Sendur
póstur
skaltu hafa samband við þjónustuveituna og fá stillingarnar.

Notandastillingar
Veldu Notandastillingar og úr eftirfarandi stillingum:

Mitt nafn — Sláðu inn nafnið sem á að birtast í sendum tölvupósti.

Senda tölvupóst (sérþjónusta) — Til að stilla hvenær senda skal tölvupóstinn skaltu
velja Strax eða Í næstu tengingu.

Afrit til sendanda — Veldu til að senda afrit af tölvupóstinum til netfangsins
sem tilgreint er í Tölvupóstfangið mitt.

Nota undirskrift — Veldu til að setja undirskrift í tölvupóstskeyti og til að búa til
eða breyta undirskriftinni.

Tilkynning um tölvup. — Til að fá ekki tilkynningar um nýjan tölvupóst skaltu
velja Óvirkt.

Móttökustillingar
Veldu Móttökustillingar og úr eftirfarandi stillingum:

Sótt tölvupóstskeyti — Til að fá aðeins fyrirsagnir skaltu velja Aðeins hausar. Til að
takmarka hve mikið af gögnum er móttekið skaltu velja Stærðartakmörk og slá inn
hámarksmagn gagna í hverjum skilaboðum í kílóbætum. Til að fá skilaboð og
viðhengi skaltu velja Sk.boð & viðhengi. Valkostirnir Stærðartakmörk og Sk.boð
& viðhengi
standa einungis til boða í POP3-pósthólfum.

background image

35

Sótt magn — Til að takmarka fjölda skilaboða sem sótt eru úr innhólfi ytra
pósthólfsins skaltu velja Úr innhólfi > Fjöldi tölvupósta og slá inn hámarksfjölda
skilaboða sem sækja skal. Einnig er hægt að takmarka fjölda skilaboða sem sótt
eru úr öðrum möppum í áskrift í Úr möppum (aðeins IMAP4-pósthólf).

IMAP4 möppuslóð (aðeins IMAP4 mailboxes) — Tilgreindu slóð fyrir möppu
í IMAP4-pósthólfum.

Möppur í áskrift (aðeins IMAP4-pósthólf) — Veldu möppur í pósthólfinu sem þú
vilt gerast áskrifandi að. Til að gerast áskrifandi eða hætta áskrift að möppu skaltu
skruna að henni og velja Valkostir > Gerast áskrifandi eða Hætta í áskrift.

Sjálfvirk tenging
Veldu Sjálfvirk tenging > Síðuhausar sóttir — Til að fá tölvupóstsfyrirsagnir
sjálfkrafa á tilteknum fresti skaltu velja Alltaf kveikt eða Bara á heimakerfi ef
þú vilt aðeins að heimakerfið móttaki fyrirsagnir. Aðeins er hægt að taka sjálfvirkt
á móti fyrirsögnum í tvö pósthólf. Hægt er að stilla á hvaða dögum, hvaða tíma
og hve oft fyrirsagnir eru sóttar í Dagar til að sækja, Klst. til að sækja og Tímabil til
að sækja
.