Nokia 5500 Sport - Stillingar fyrir margmiðlunarboð

background image

Stillingar fyrir margmiðlunarboð

Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Margmiðlunarboð og úr
eftirtöldum valkostum:

Stærð myndar — Tilgreindu stærð myndar í margmiðlunarboðum: Lítil (hámark
160 x 120 dílar) eða Stór (hámark 640 x 480 dílar). Ef þú velur Upprunaleg er
myndin ekki kvörðuð.

MMS-gerð — Ef þú velur Með viðvörunum lætur síminn þig vita ef þú reynir að
senda skilaboð sem ekki er víst að viðtökutæki styðji. Til að láta símann hindra
sendingu óstuddra skilaboða skaltu velja Takmörkuð. Ef þú velur Allt er hægt að
búa til skilaboð en ekki er víst að viðtakandinn geti skoðað skilaboðin.

Aðg.staður í notkun — Veldu hvaða aðgangsstaður er notaður sem tenging fyrir
margmiðlunarboð.

Móttaka margmiðl. — Til að taka við margmiðlunarboðum á heimaneti skaltu velja
Sjálfvirk í heimakerfi. Móttaka margmiðlunarskilaboða er þá óvirk þegar síminn er
tengdur við annað símkerfi. Til að taka alltaf við margmiðlunarboðum skaltu velja
Alltaf sjálfvirk. Til að sækja tölvupóst handvirkt skaltu velja Handvirkt val. Til að
leyfa aldrei móttöku margmiðlunarboða og auglýsinga skaltu velja Óvirk.

Leyfa nafnl. skilaboð — Til að hafna skilaboðum frá óþekktum sendanda skaltu
velja Nei.

Fá auglýsingar — Tilgreindu hvort þú vilt leyfa móttöku margmiðlunarboða sem
innihalda auglýsingar.

background image

34

Tilkynning um skil — Ef þú vilt að staða sendra skilaboða (Bíður, Mistókst eða
Skilað) birtist í Tilkynningar skaltu velja . Hugsanlega geturðu ekki fengið
skilatilkynningar um margmiðlunarboð sem hafa verið send á tölvupóstfang.

Neita sendingu tilk. > — Til að hafna því að skilatilkynningar séu sendar.

Gildistími skilaboða (sérþjónusta) — Ef ekki næst í viðtakanda skilaboða
á gildistímanum eru skilaboðin fjarlægð úr margmiðlunarboðastöðinni.
Hámarkstími er hámarkstíminn sem símakerfið leyfir að skilaboðin séu gild.