
Nokia Xpress hljóðskilaboð
Hljóðskilaboð eru margmiðlunarboð með einu hljóðinnskoti. Til að búa til og
senda hljóðskilaboð:
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Ný skilaboð > Hljóðskilaboð.
2. Í reitinn Viðtak. skaltu slá inn símanúmer eða netfang viðtakandans. Til
að velja viðtakendur eða hópa úr Tengiliðir skaltu styðja á skruntakkann.
Skrunaðu niður í skilaboðareitinn.
3. Til að taka upp nýtt hljóðinnskot skaltu velja Valkostir > Setja inn hljóðskrá >
Ný hljóðskrá. Upptaka hefst.
Til að nota áður upptekið hljóðinnskot skaltu velja Valkostir > Setja inn
hljóðskrá > Úr Galleríi, skruna að hljóðinnskotinu og velja það.
4. Til að senda skilaboðin skaltu velja Valkostir > Senda.