Nokia 5500 Sport - Skilaboð rituð og send

background image

Skilaboð rituð og send

Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn fer
yfir þessi mörk getur tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.

Tækið styður sendingu textaskilaboða sem eru lengri en sem nemur lengdartakmörkunum
á stökum skilaboðum. Lengri skilaboð verða send sem röð tveggja eða fleiri skilaboða.
Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða
önnur tákn og stafir úr sumum tungumálakostum, eins og kínversku, taka meira pláss sem
takmarkar þann fjölda stafa sem hægt er að senda í einum skilaboðum.

Til athugunar: Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt
margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.

Áður en þú getur sent og tekið á móti SMS-skilaboðum, margmiðlunarboðum eða
tölvupósti, eða tengst við ytra pósthólf, verða réttar tengistillingar að vera fyrir
hendi. Sjá „Stillingar skilaboða“ á bls. 32.

1. Til að búa til skilaboð skaltu velja Valmynd > Skilaboð > Ný skilaboð og úr

eftirfarandi valkostum:

SMS-skilaboð — til að búa til textaskilaboð.

Margmiðlunarboð — til að búa til margmiðlunarboð (MMS).

Tölvupóstur — til að búa til tölvupóstskeyti. Ef þú hefur enn ekki sett upp
tölvupóstfang er spurt hvort þú viljir gera það.

Hljóðskilaboð — til að búa til hljóðskilaboð. Sjá „Nokia Xpress hljóðskilaboð“
á bls. 28.

2. Í reitinn Viðtak. skaltu slá inn símanúmer eða netfang viðtakandans. Til

að velja viðtakendur eða hópa úr Tengiliðir skaltu styðja á skruntakkann.
Aðgreindu viðtakendur með semíkommu (;).

3. Þegar tölvupóstur eða margmiðlunarboð eru búin til skaltu skruna niður

í efnisreitinn og slá inn hvert efni skilaboðanna er.

4. Skrunaðu niður til að fara í textasvæði skilaboðanna.

background image

28

5. Skrifaðu skilaboðin.

Þegar þú skrifar skilaboðin sýnir lengdarvísir skilaboðanna hve marga stafi þú
getur slegið inn. Til dæmis merkir 10 (2) að enn megi bæta 10 stöfum í texta
sem sendur verður í tveim hlutum.

Til að nota sniðmát fyrir skilaboðin skaltu velja Valkostir > Bæta í > Sniðmáti.
Til að búa til kynningu með sniðmáti sem senda skal sem margmiðlunarboð
skaltu velja Valkostir > Búa til kynningu. Til að nota sniðmát fyrir
margmiðlunarboðin skaltu velja Valkostir > Setja inn hlut > Sniðmát.

Til að setja miðlunarhlut inn margmiðlunarskilaboð skaltu velja Valkostir >
Setja inn hlut > Mynd, Hljóðskrá eða Myndskeið. Til að búa til og bæta við
nýjum miðlunarhlut skaltu velja Valkostir > Setja inn nýja > Mynd, Hljóðskrá,
Myndskeið eða Skyggnu. Þegar hljóði hefur verið bætt við birtist táknið

.

Til að bæta miðlunarhlut við tölvupóstskeyti skaltu velja Valkostir > Bæta í >
Mynd, Hljóðskrá, Myndskeið, Minnismiða eða Sniðmáti.

6. Til að senda skilaboðin skaltu velja Valkostir > Senda eða styðja

á hringitakkann.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda
sumar myndir, tónlist (þar á meðal hringitóna) og annað efni.