
5. Skilaboð
Þú getur búið til, sent, tekið á móti, skoðað, breytt og skipulagt textaboð,
margmiðlunarboð, tölvupóstskeyti, kynningar og skjöl. Þú getur einnig tekið
við skilaboðum og gögnum um Bluetooth-tengingu, tekið við og áframsent
myndskilaboð, tekið við þjónustuboðum og skilaboðum frá endurvarpa og sent
þjónustuskipanir.
Til að opna Skilaboð skaltu velja Valmynd > Skilaboð. Þá geturðu séð aðgerðina
Ný skilaboð og lista yfir sjálfgefnar möppur:
Innhólf — inniheldur móttekin skilaboð, fyrir utan tölvupóstskeyti og skilaboð
frá endurvarpa. Tölvupóstskeyti eru vistuð í möppunni Pósthólf. Til að lesa
skilaboð frá endurvarpa skaltu velja Valkostir > Upplýs. frá endurv..
Mínar möppur — til að skipuleggja skilaboðin þín með því að raða þeim
í möppur.
Pósthólf — til að tengjast ytra pósthólfinu þínu til að sækja ný tölvupóstskeyti
eða skoða áður sótt tölvupóstskeyti án tengingar. Þegar þú hefur tilgreint
stillingar fyrir nýtt pósthólf birtist nafnið á því pósthólfi í stað Pósthólf.
Uppköst — vistar drög að skilaboðum sem hafa ekki verið send.

27
Sendir hlutir — vistar skilaboðin sem send hafa verið, utan þeirra sem send
hafa verið um Bluetooth-tengingu. Þú getur breytt því hversu mörg skilaboð eru
vistuð. Sjá „Aðrar stillingar“ á bls. 36.
Úthólf — vistar tímabundið skilaboð sem bíða sendingar.
Tilkynningar (sérþjónusta) — vistar skilatilkynningar textaboða, sérstakra
skilaboðategunda, svo sem nafnspjalda, og margmiðlunarboða sem þú hefur sent.
Hugsanlega geturðu ekki fengið skilatilkynningar um margmiðlunarboð sem hafa
verið send á tölvupóstfang.