Nokia 5500 Sport - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

Með flýtiritun er hægt að slá inn hvaða staf sem er með því að styðja aðeins einu
sinni á hvern takka. Flýtiritunin er gerð virk með því að styðja á ritfærslutakkann
og velja Kveikja á flýtiritun. Þá er flýtiritunin virk í öllum ritlum símans.

1. Til að rita tiltekið orð skaltu styðja á takka 29. Styddu aðeins einu sinni

á hvern takka fyrir hvern staf. Orðið breytist í hvert sinn sem þú styður á takka.

Til að fá fram algengustu greinarmerkin skaltu styðja á 1. Til að fá fram fleiri
greinarmerki og sérstafi skaltu halda * inni eða styðja á ritfærslutakkann og
velja Bæta í tákni.

Styddu á hreinsitakkann til að eyða staf. Haltu hreinsitakkanum inni til að eyða
fleiri en einum staf.

2. Þegar þú hefur slegið inn orð og það er rétta orðið skaltu staðfesta það með

því að skruna áfram eða styðja á 0 til að setja inn bil.

Ef orðið er rangt, getur þú valið úr eftirtöldum kostum:

• Til að skoða samsvarandi orð sem orðabókin hefur fundið skaltu styðja

endirtekið á *.

• Til að sjá lista yfir samsvarandi orð skaltu styðja á ritfærslutakkann og velja

Flýtiritun > Finna svipað. Skrunaðu að orðinu sem þú vilt nota og styddu
á skruntakkann til að velja það.

Ef ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vildir rita ekki að finna í orðabókinni.
Til að bæta við orði í orðabókina skaltu velja Stafa eða styðja
á ritfærslutakkann og velja Flýtiritun > Bæta í orði. Sláðu inn orðið (hámark
32 stafi) með hefðbundnum innslætti og veldu Í lagi. Orðinu er bætt
í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full er elsta orðinu sem var sett inn
í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.

Til að opna skjá þar sem þú getur breytt orðinu (þessi valkostur er aðeins til
staðar ef orðið er virkt (undirstrikað)) skaltu styðja á ritfærslutakkann og velja
Flýtiritun > Breyta orði.

background image

26