Símafundi komið á
Símafundir eru sérþjónusta.
1. Hringdu í fyrsta þátttakandann.
2. Til að hringja í annan þátttakanda skaltu velja Valkostir > Ný hringing. Fyrra
símtalið er sjálfkrafa sett í bið.
22
3. Til að tengja fyrsta þátttakandann við símafundinn þegar nýju hringingunni er
svarað skaltu velja Valkostir > Símafundur.
• Endurtaktu skref 2 ef þú vilt bæta nýjum þátttakanda við símtalið og veldu
Valkostir > Símafundur > Bæta í símafund. Síminn styður símafundi með
allt að sex þátttakendum.
• Til að tala einslega við einn þátttakandann skaltu velja Valkostir >
Símafundur > Einkamál. Veldu þátttakandann og styddu á Einkamál.
Símafundurinn er settur í bið í símanum þínum. Aðrir þátttakendur geta
haldið símafundinum áfram. Til að fara aftur á símafundinn skaltu velja
Valkostir > Bæta í símafund.
• Til að loka á þátttakanda skaltu velja Valkostir > Símafundur > Sleppa
þátttakanda, skruna að þátttakandanum og velja Sleppa.
4. Styddu á hætta-takkann til að slíta símafundinum.