
Hringt með raddstýringu
Ef forrit er að nota pakkagagnatenginguna til að senda eða taka á móti gögnum
þarf fyrst að loka forritinu svo hægt sé að hringja með raddskipun.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi
eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
1. Haltu hægri valtakkanum inni þegar síminn er í biðham. Stuttur tónn heyrist og
textinn Tala núna birtist á skjánum.
Ef þú notar samhæft höfuðtól með höfuðtólstakka skaltu halda honum inni.
2. Berðu raddskipunina skýrt fram. Síminn spilar raddskipun þeirrar færslu sem
passar best. Eftir 1,5 sekúndu hringir síminn í númerið; ef niðurstaðan er röng
skaltu velja Næsta og síðan aðra færslu til að hringja í númer hennar.
Þegar hringt er þjóna raddskipanir og raddstýrð hringing sama tilgangi.
Sjá „Raddskipanir“ á bls. 54.