■ Hjálp
Tækið inniheldur hjálpartexta fyrir valmyndir þess. Þá má opna í forritum tækisins
eða í aðalvalmyndinni.
Til að skoða hjálpartexta þegar forrit er opið skaltu velja Valkostir > Hjálp. Til að
skipta milli hjálpartextans og forritsins sem er opið í bakgrunninum skaltu velja
Valmynd og halda inni. Veldu Valkostir og úr eftirtöldum valkostum:
Skrá yfir efni — til að skoða skrá yfir tiltæk efni í viðkomandi flokki.
Skrá yfir hjálparfl. — til að skoða skrá yfir hjálparflokka.
Leita e. efnisorðum — til að leita að hjálparefni með lykilorðum.
Til að opna hjálpina úr aðalvalmyndinni skaltu velja Verkfæri > Hjálp. Í skránni yfir
hjálparflokka skaltu velja forrit til að sjá hjálpartexta þess. Til að skipta milli
hjálparskráarinnar, sem táknuð er með
, og lykilorðalista, sem táknaður er
með
, skaltu skruna til vinstri eða hægri. Styddu á skruntakkann til að birta
hjálpartextann.