Tónlistarsafn
Tónlistarsafn er gagnagrunnur með tiltækum lögum. Í tónlistarsafninu er hægt að
velja sér tónlist til að hlusta á og búa til og skipuleggja spilunarlista.
Til að opna tónlistarsafnið í aðalvalmynd tónlistarspilarans skaltu skruna að
og styðja á skruntakkann.
Til að uppfæra tónlistarsafnið og leita að lögum í minni símans og á minniskortinu
skaltu velja Valkostir > Uppfæra Tónlistarsafn. Eftir uppfærsluna birtast
breytingarnar á safninu á skjánum.
Hægt er að velja tónlist úr tónlistarsafninu með ýmsu móti. Til að spila t.d. tiltekið
albúm skaltu velja Plötur, skruna að því og velja Valkostir > Spila. Eða ef hlusta
skal á tiltekin lög í albúminu skaltu velja Plötur og albúm, merkja lögin og velja
Valkostir > Spila.