Nokia 5500 Sport - Stillingar fyrir spjall

background image

Stillingar fyrir spjall

Veldu Valmynd > Tenging > Spjall > Valkostir > Stillingar > Spjallstillingar og úr
eftirfarandi stillingum:

Nota skjánafn — Veldu til að slá inn gælunafn (að hámarki 10 stafir).

Spjallstaða — Til að leyfa einungis tengiliðum þínum að sjá þegar tenging þín er
virk skaltu velja Aðeins f. spjalltengiliði. Til að koma í veg fyrir að aðrir sjái að
tenging þín sé virk skaltu velja Sýna engum.

Leyfa skilaboð frá — Veldu Allir, Úr spjalltengiliðum eða Engum.

Leyfa boð frá — Veldu Allir, Úr spjalltengiliðum eða Engum.

Aðrar stillingar kunna einnig að vera tiltækar.

Veldu Valmynd > Tenging > Spjall > Valkostir > Stillingar > Stillingar miðlara og
úr eftirfarandi stillingum:

Miðlarar — Til að breyta stillingum fyrir tengingar skaltu skruna að miðlaranum
og velja Valkostir > Breyta. Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá
stillingarnar. Til að tilgreina nýjar stillingar fyrir miðlara skaltu velja Valkostir >
Nýr miðlari. Til að eyða miðlara skaltu skruna að honum og velja Valkostir > Eyða.

Sjálfgefinn miðlari — til að velja sjálfgefinn miðlara.

Gerð innskr. á spjall — til að tengjast sjálfkrafa við spjallmiðlara á þeim dögum og
tímum sem þú tilgreinir skaltu velja Sjálfvirk. Veldu Sj. á heimasímk. til að vera
eingöngu með sjálfvirka tengingu í heimasímkerfinu. Til að tengjast sjálfkrafa
þegar þú ræsir spjallforritið skaltu velja Við ræs. forrits. Til að tengjast handvirkt
skaltu velja Handvirk.

Innskráningardagar og Innskráningartímar — til að stilla á hvaða tímum þú vilt
koma á sjálfvirkri tengingu. Þessar stillingar birtast aðeins ef Gerð innskr. á spjall
er stillt á Sjálfvirk eða Sj. á heimasímk..