Nokia 5500 Sport - Notandastillingar

background image

Notandastillingar

Móttekin kallk.símtöl — Til að sjá tilkynningu um innhringingar skaltu velja
Tilkynna. Til að svara kallkerfishringingum sjálfvirkt skaltu velja Samþ. sjálfkrafa.
Ef þú vilt ekki taka á móti kallkerfishringingum skaltu velja Óheimilt.

Hringitónn kallkerfis — Veldu hringitón fyrir móttekin kallkerfissímtöl. Ef þú vilt að
stilling fyrir innhringingu í kallkerfi sé eins og sniðstillingarnar þínar skaltu velja
Nota tón sniðs. Ef t.d. er slökkt á hljóði þá er kallkerfið stillt á „ekki trufla“ og þú
svarar ekki öðrum sem nota kallkerfið, nema þeim sem biðja þig um að hringja
til baka.

background image

80

Tónn svarhringingar — Veldu tón fyrir beiðnir um að hringja til baka.

Ræsing forrits — Til að að kallkerfi sé komið á sjálfvirkt skaltu velja Alltaf sjálfvirk.
Til að kallkerfi sé einungis komið á sjálfvirkt þegar þú ert tengdur heimakerfinu
þínu skaltu velja Sjálfv. í heimakerfi.

Sjálfgefið gælunafn — Sláðu inn gælunafn þitt sem aðrir notendur sjá.
Þjónustuveitan kann að hafa gert breytingu á þessum valkosti óvirka í símanum.

Sýna vistfangið mitt — Veldu Aldrei ef þú vilt fela kallkerfisvistfang þitt fyrir
öðrum aðilum á kallkerfisrásunum og í tveggja manna tali.

Sýna stöðu mína — Veldu ef þú vilt að staða þín birtist, eða Nei ef þú vilt ekki að
staða þín birtist.