
Kallkerfissamtöl
Kallkerfissamtöl birtast sem samtalsgluggar á kallkerfisskjánum og þar má sjá
upplýsingar um stöðu kallkerfissamtalanna:
auðkennir það kallkerfissamtal sem er í gangi.
Bíddu — birtist þegar þú heldur kallkerfistakkanum inni þegar einhver annar er að
tala í kallkerfissamtalinu.
Talaðu — birtist þegar þú heldur kallkerfistakkanum inni og færð leyfi til að tala.
Textareiturinn sýnir gælunafn fyrir tveggja manna tal eða nafn rásar fyrir
innhringingu. Þegar hringt er í hóp birtist Hópsímtal á skjánum.
Veldu Valkostir til að fá aðgang að eftirfarandi:
Aftengjast — til að aftengjast því kallkerfissamtali sem valið hefur verið og loka
samtalsglugganum.
Kallkerfistengiliðir — til að opna listann yfir kallkerfistengiliði.
Kallkerfisrásir — til að opna listann yfir kallkerfisrásir.
Innhólf svarhringinga — til að opna innhólfið fyrir beiðnir um svarhringingu.
Notkunarskrá — til að skoða notkunarskrána fyrir kallkerfið.
Stillingar — til að fá aðgang að aðalstillingum kallkerfisins.
Það eru fleiri valkostir í boði þegar um hópsamtöl og rásir er að ræða:
Virkir meðlimir — til að skoða lista yfir virka meðlimi.
Senda boð — til að opna skjá fyrir boð (eingöngu til staðar fyrir eigin rásir eða
almennar rásir).