
■ Kallkerfi
Í kallkerfi (sérþjónusta) er um að ræða símtal yfir kallkerfisþjónustu í rauntíma
(sérþjónusta) sem komið er á með GSM/GPRS-símkerfi. Í kallkerfinu er komið
á beinu talsambandi með því að styðja á takka.
Áður en kallkerfisþjónusta er tekin í notkun þarf að tilgreina aðgangsstað
þjónustunnar og stillingar fyrir kallkerfið. Þú kannt að fá stillingarnar sendar
sem samskipanaboð frá símafyrirtækinu eða kallkerfisþjónustuveitunni.

79
Í samskiptum gegnum kallkerfið talar einn aðili en hinir hlusta gegnum innbyggða
hátalarann. Notendur skiptast á að svara hver öðrum. Þar sem aðeins einn aðili
getur talað í einu fær hann tiltekinn hámarkstíma.
Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir samtöl um kallkerfi.
Að pakkagagnateljaranum undanskildum skráir síminn aðeins tveggja manna
tal í listanum yfir nýleg símtöl í Notkunarskrá. Þátttakendur í samtali ættu
að staðfesta móttöku samskipta þar sem það á við þar sem ekki er um aðra
staðfestingu að ræða á því að þeir hafi heyrt hringinguna.
Símafyrirtækið eða þjónustuveitan veitir upplýsingar um framboð, kostnað og
áskrift að þjónustunni. Hafa ætti í huga að reikiþjónusta kann að vera takmarkaðri
en gerist með símtöl um heimasímakerfið.
Hægt er að nota aðrar aðgerðir símans þegar kallkerfið er í notkun. Mikill hluti
þeirrar þjónustu sem stendur til boða í hefðbundnum símtölum (svo sem talhólf)
er ekki til staðar í samskiptum um kallkerfi.