Nokia 5500 Sport - Stillingar Bluetooth-tengingar

background image

Stillingar Bluetooth-tengingar

Veldu Valmynd > Tenging > Bluetooth.

Þegar þú virkjar Bluetooth-tækni í fyrsta skipti er beðið um að þú gefir
símanum heiti.

Bluetooth — til að stilla Bluetooth á Kveikt/Slökkt

Sýnileiki síma míns > Sýnilegur öllum — til að leyfa öðrum Bluetooth-tækjum
að finna símann þinn. Til öryggis er þér ráðlagt að nota stillinguna Falinn þegar
það er mögulegt.

Nafn síma míns — til að gefa símanum nafn.

Ytra SIM > Kveikt — til að gera SIM-kort símans virkt frá öðru tæki (t.d. bílbúnaði)
með Bluetooth (SIM Access Profile SAP).

Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt
að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur
verið læst skal fyrst færa inn númerið sem tekur það úr lás.