Nokia 5500 Sport - Gögn send um Bluetooth

background image

Gögn send um Bluetooth

Aðeins er hægt að hafa eina Bluetooth-tengingu virka í einu.

1. Opnaðu forrit þar sem hluturinn sem þú vilt senda er geymdur. Ef þú vilt t.d.

senda mynd í annað tæki skaltu opna gallerí-forritið.

2. Skrunaðu að hlutnum sem þú vilt senda og veldu Valkostir > Senda >

Með Bluetooth.

3. Síminn byrjar að leita að tækjum á svæðinu. Pöruð tæki eru auðkennd með

.

background image

72

Til að stöðva leitina skaltu styðja á Hætta leit. Tækjalistinn stöðvast og þú
getur komið á tengingu við eitthvert tækjanna sem fannst.

Þegar þú leitar að tækjum geta sum tæki aðeins sýnt eingild vistföng sín.
Til að finna eingilt auðkennisnúmer símans þíns skaltu slá inn kóðann
*#2820# í biðham.

Ef þú hefur áður leitað að tækjum birtist fyrst listi yfir þau tæki sem fundust
við þá leit. Til að hefja nýja leit skaltu velja Fleiri tæki. Ef þú slekkur á símanum
er tækjalistinn hreinsaður og ræsa verður tækjaleitina aftur áður en gögn
eru send.

4. Skrunaðu að tækinu sem þú vilt tengjast og veldu það. Hluturinn sem þú sendir

er afritaður í úthólfið og athugasemdin Er að tengjast birtist.

5. Pörun:

• Ef hitt tækið fer fram á pörun áður en hægt er að senda gögn heyrist

hljóðmerki og beðið er um tengikóða.

• Búðu til þinn eigin tengilykil (1-16 tölustafir) og biddu eiganda hins

tækisins um að nota sama tengilykil. Þessi tengilykill er aðeins notaður einu
sinni og þú þarft ekki að leggja hann á minnið.

• Eftir pörun vistast tækið á skjánum Pöruð tæki.

6. Þegar tengingunni hefur verið komið á birtist athugasemdin Sendi gögn.

Gögn sem hafa borist um Bluetooth-tengingu er að finna í möppunni Innhólf
í Skilaboð.

Tákn fyrir mismunandi tæki:

(Tölva),

(Sími),

(Hljóð/mynd) og

(Bluetooth-tæki).

Ef sending mistekst er gögnunum eða skilaboðunum eytt. Mappan Uppköst í
Skilaboð vistar ekki skilaboð sem send eru um Bluetooth-tengingu.