Nokia 5500 Sport - Bluetooth-tenging

background image

Bluetooth-tenging

Bluetooth-tækni heimilar þráðlausa tengingu á milli rafeindatækja sem eru í allt
að 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Bluetooth-tengingu má nota til að
senda myndir, myndinnskot, texta, nafnspjöld eða minnispunkta dagbókar, sem og
til að tengjast við samhæf Bluetooth-tæki, svo sem við tölvur.

background image

71

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2,0 sem styður eftirfarandi snið: Generic
Access Profile, Hands-free Profile, Headset Profile, Basic Imaging Profile, Object Push Profile,
File Transfer Profile, Dial Up Networking Profile, Serial Port Profile, Generic Object Exchange
Profile og SIM Access Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja
Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita
skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá
yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan
aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.