Nokia 5500 Sport - Stjórnun tækis

background image

Stjórnun tækis

Þú getur fengið miðlarasnið og samskipunarstillingar frá símafyrirtækinu þínu,
þjónustuveitu eða upplýsingadeild.

Til að opna Stj. tækis skaltu velja Valmynd > Verkfæri > Stj. tækis. Ef ekki er búið
að tilgreina nein miðlarasnið er spurt hvort þú viljir tilgreina slíkt snið.

Til að tengjast við miðlara og taka við samskipunarstillingum fyrir símann þinn
skaltu skruna að miðlarasniðinu og velja Valkostir > Hefja stillingu.

Til að breyta miðlarasniði skaltu velja Valkostir > Breyta sniði og úr eftirfarandi
stillingum:

Nafn miðlara — Sláðu inn heiti samskipunarmiðlarans.

Auðkenn.nr. netþjóns — Sláðu inn einkvæma kennið til að auðkenna
samskipunarmiðlarann.

Lykilorð miðlara — Sláðu inn lykilorðið sem senda á til miðlarans.

Aðgangsstaður — Veldu aðgangsstað sem á að nota þegar tengst er við miðlarann.

Heimaveffang — Sláðu inn veffang miðlarans.

Gátt — Sláðu inn gáttartölu miðlarans.

Notandanafn og Lykilorð — Sláðu inn notandanafn þitt og lykilorð.

Leyfa stillingar — Til að taka við samskipanastillingum frá miðlaranum skaltu
velja .

background image

69

Samþ. allar sjálfkrafa — Ef þú vilt að síminn biðji um staðfestingu áður en hann
tekur við samskipun frá miðlaranum skaltu velja Nei.

Sannvottun símkerfis — Til að nota sannvottun skaltu velja og slá inn
notandanafn þitt og lykilorð í Notandanafn símkerfis og Lykilorð símkerfis.