Nokia 5500 Sport - Uppsetning forrits

background image

Uppsetning forrits

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá aðilum sem
veita nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.

Áður en forrit er sett upp skaltu velja Valmynd > Verkfæri > Stj. forrita, skruna að
uppsetningarskránni og velja Valkostir > Skoða frekari uppl. til að skoða t.d.
upplýsingar um gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda
forritsins.

Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur
síminn beðið þig um að hlaða henni niður.

Til að setja upp forrit eða hugbúnaðarpakka:

1. Skrunaðu að uppsetningarskrá. Forrit sem sett eru upp á minniskortinu eru

merkt með

.

2. Veldu Valkostir > Setja upp.

Þú getur einnig leitað í minni símans eða á minniskortinu, valið forritið og
stutt á skruntakkann til að hefja uppsetninguna.

background image

67

Meðan á uppsetningu stendur birtir síminn upplýsingar um stöðu
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án stafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir síminn viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að skoða fleiri upplýsingar um forritið skaltu skruna að því og velja Valkostir >
Opna vefsíðu. Ekki er víst að þessi valkostur sé tiltækur í öllum forritum.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir, og hvenær
það var gert skaltu velja Valkostir > Skoða notk.skrá. Til að senda
uppsetningarskrána á hjálparskjá svo að hægt sé að sjá hvað hefur verið sett upp
eða fjarlægt skaltu velja Senda notk.skrá.