Nokia 5500 Sport - Pakkagögn

background image

Pakkagögn

Pakkagagnastillingar hafa áhrif á alla aðgangsstaði sem nota
pakkagagnatengingar.

Veldu Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Samband > Pakkagögn og úr eftirtöldum
valkostum:

Pakkagagnatenging — Ef þú velur Ef samband næst og síminn er tengdur við
símkerfi sem styður pakkagögn skráist hann inn á GPRS-kerfið og SMS eru send
um GPRS. Einnig verður fljótlegra að ræsa virka pakkagagnatengingu, t.d. til að
senda og taka við tölvupósti. Ef þú velur Ef með þarf notar síminn aðeins
pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar. Loka má
GPRS-tengingunni þegar ekkert forrit þarf hana lengur.

Ef ekkert GPRS-samband er til staðar og þú hefur valið Ef samband næst reynir
síminn reglulega að koma á pakkagagnatengingu.

Aðgangsstaður — Til að nota símann sem pakkagagnamótald fyrir tölvuna þarf að
slá inn heiti aðgangsstaðarins.