Nokia 5500 Sport - Aðgangsstaðir

background image

Aðgangsstaðir

Til að búa til nýjan aðgangsstað eða breyta gildandi aðgangsstað skaltu velja
Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Samband > Aðgangsstaðir > Valkostir > Nýr
aðgangsstaður
eða Breyta. Ef þú býrð til nýjan aðgangsstað skaltu nota stillingar
gildandi aðgangsstaðar sem grunn með því að velja Nota gildandi stillingar eða
byrja með sjálfgefnum stillingum og velja Nota sjálfv. stillingar.

Fylgdu leiðbeiningum símafyrirtækisins eða þjónustuveitunnar.

Nafn tengingar — til að gefa tengingunni lýsandi heiti.

Flutningsmáti — Valkostirnir eru Pakkagögn, Gagnasímtal og Háhr. gögn (GSM).
Aðeins tilteknir stillingarreitir eru í boði eftir því hvaða tenging er valin. Fylltu út
í alla reiti sem eru merktir með Þarf að skilgr. eða stjörnu. Aðra reiti þarf ekki að
fylla út nema þjónustuveitan hafi tekið það fram.

Nafn aðgangsstaðar (aðeins fyrir pakkagögn) — nauðsynlegt er að velja heiti
aðgangsstaðar til að koma á tengingu við GPRS-símkerfið.

Innhringinúmer (aðeins fyrir gagnasímtöl) — símanúmer mótaldsins fyrir
aðgangsstaðinn.

Notandanafn — notandanafn getur verið nauðsynlegt til að koma á
gagnatengingu og þjónustuveita lætur það yfirleitt í té. Í notandanafninu er oft
gerður greinarmunur á há- og lágstöfum.

Biðja um lykilorð — ef þú vilt þurfa að slá inn nýtt lykilorð við hverja innskráningu
á miðlara, eða ef þú vilt ekki vista lykilorðið í símanum skaltu velja .

Lykilorð — lykilorð kann að vera nauðsynlegt til að koma á gagnatengingu og
það fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni. Í lykilorðum er oft gerður greinarmunur
á há- og lágstöfum.

AðgangskortVenjulegt eða Öruggt.

Heimasíða — slá skal inn veffangið eða veffang skilaboðamiðstöðvar
margmiðlunarboða, eftir því hvort verið er að setja upp internetaðgangsstað eða
MMS-aðgangsstað.

background image

60

Tegund gagnasímtals (aðeins fyrir gagnasímtöl) — skilgreinir hvort síminn notar
hliðræna eða stafræna tengingu. Nánari upplýsingar fást hjá
internetþjónustuveitunni.

Hámarks gagnahraði (aðeins fyrir gagnasímtöl) — Þessi valkostur gerir þér kleift
að takmarka hámarks sendihraðann þegar þú notar gagnatengingu.
Gagnaflutningshraðinn getur verið minni meðan tengingin er virk, hann fer eftir
álaginu sem er á kerfinu hverju sinni.

Veldu Valkostir > Frekari stillingar og breyttu eftirtöldum valkostum:

Gerð símkerfis (aðeins fyrir pakkagögn) — internetsamskiptareglur (IP)
símkerfisins: IPv4 eða IPv6. Aðrar stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi
þú velur.

IPv4 stillingar og IPv6 stillingar (aðeins fyrir gagnasímtöl) — stillingar fyrir
internetsamskiptareglur. Stillingarnar fara eftir því hvert símkerfið er.

IP-tala símans (fyrir IPv4)—til að slá inn IP-tölu símans.

DNS-veffang — til að slá inn IP-tölu aðal- og aukanafnamiðlarans.

Veff. proxy-miðlara — til að slá inn IP-tölu proxy-miðlarans.

Númer proxy-gáttar — til að slá inn gáttarnúmer proxy-miðlarans.

Eftirfarandi stillingar birtast ef þú hefur valið gagnasímtal sem gerð
tengingarinnar:

Nota svarhringingu > — til að miðlari geti hringt aftur eftir fyrstu hringingu.
Hafðu samband við þjónustuveituna til að gerast áskrifandi að þessari þjónustu.

Síminn gerir ráð fyrir að við svarhringingu séu notaðar sömu stillingar
gagnasímtals og í símtalinu þar sem beðið var um svarhringinguna. Símkerfið
verður að styðja þessa gerð símtals í báðar áttir, bæði til símans og frá honum.

Teg. svarhringingar — Valkostirnir eru Nota nr. miðlara og Nota annað nr..

Nr. fyrir svarhring. — til að slá inn símanúmerið sem svarhringimiðlarinn notar.

Nota PPP-þjöppun — Til að hraða gagnasendingunni skaltu velja ef ytri
PPP-miðlarinn styður það.

Nota innskráningu > — til að nota innskráningu þegar tengingu er komið á.

Innskráning — til að slá inn innskráninguna.

Setja upp mótald (strengur til að setja upp mótald) — til að stýra símanum með
AT-skipunum mótalds. Sláðu inn skipanir sem símafyrirtækið þitt eða
internetþjónustuveitan tilgreinir ef þess er þörf.

background image

61