Nokia 5500 Sport - Símtöl

background image

Símtöl

Veldu Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Hringing og úr eftirtöldum valkostum:

Senda mitt númer (sérþjónusta) — til að símanúmerið þitt birtist () eða birtist
ekki (Nei) þeim aðila sem þú hringir í. Einnig getur gildið verið stillt af
símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni þegar númer er fengið (Stillt af símkerfi).

background image

58

Símtal í bið (sérþjónusta) — til að símkerfið láti þig vita ef hringt er í þig á meðan
þú ert að tala í símann. Til að senda beiðni til símkerfisins um að gera þjónustu
símtala í bið virka skaltu velja Gera virkt. Til að senda beiðni til símkerfisins um að
gera þjónustu símtala í bið óvirka skaltu velja Ógilda. Til að kanna hvort þjónustan
er virk skaltu velja Athuga stöðu.

Hafna símtali með SMS — til að hægt sé að hafna símtölum með textaskilaboðum.
Sjá „Símtali svarað eða hafnað“ á bls. 22.

Texti skilaboða — til að slá inn texta sem á að senda þegar þú hafnar símtali með
textaskilaboðum.

Sjálfvirkt endurval — til að láta símann gera allt að tíu tilraunir til að hringja aftur
í númer sem ekki náðist samband við. Styddu á hætta-takkann til að gera
sjálfvirka endurvalið óvirkt.

Samantekt e. hring. — til að láta símann birta í stutta stund áætlaða lengd
síðasta símtals.

Hraðval > Virkt — til að láta símann hringja í númerin sem úthlutað hefur verið
á hraðvalstakkana 2 to 9 með því að halda inni viðkomandi talnatakka.

Takkasvar > Virkt — til að geta svarað símtölum með því að styðja stuttlega
á hvaða takka sem er, fyrir utan hætta-takkann, vinstri og hægri valtakkana,
rofann, hljóðstyrkstakkana og kallkerfistakkann.

Lína í notkun (sérþjónusta) — Þessi stilling sést aðeins ef SIM-kortið styður tvö
númer í áskrift, þ.e. tvær símalínur. Veldu hvora símalínuna (Lína 1 eða Lína 2)
þú vilt nota til að hringja og senda skilaboð.

Hægt er að svara símtölum á báðum línum, án tillits til þess hvor línan er valin.
Þú getur ekki hringt ef þú velur Lína 2 og ert ekki áskrifandi að þeirri sérþjónustu.
Til að hindra val á línum skaltu velja Línuskipting > Gera óvirka ef SIM-kortið
styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.