Nokia 5500 Sport - Símkerfi

background image

Símkerfi

Veldu Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Símkerfi og úr eftirtöldum valkostum:

Val á símafyrirtæki — Til að stilla símann þannig að hann leiti að og velji eitt af
þeim símkerfum sem eru í boði skaltu velja Sjálfvirkt. Til að velja símkerfi
handvirkt af lista skaltu velja Handvirkt. Ef tengingin við símkerfið sem valið var
handvirkt rofnar, spilar síminn hljóðmerki og biður þig um að velja símkerfi aftur.
Símkerfið sem valið er verður að vera með reikisamning við heimakerfið þitt, þ.e.
fyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið þitt.

Uppl. um endurvarpa (sérþjónusta) — Til að stilla símann þannig að hann gefi til
kynna þegar hann er notaður í símkerfi sem byggist á örbylgjutækni (MCN) og til
að virkja móttöku upplýsinga um endurvarpa skaltu velja Virkar.