Nokia 5500 Sport - Útilokanir símtala

background image

Útilokanir símtala

Með útilokun símtala (sérþjónusta) geturðu takmarkað hringingar úr og í símann.
Til að breyta stillingunum þarftu lykilorð útilokanna frá þjónustuveitunni þinni.

1. Veldu Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Útilokanir.

2. Skrunaðu að tilteknum útilokunarvalkosti og til að senda beiðni til símkerfisins

um að virkja takmarkanirnar skaltu velja Valkostir > Gera virkar. Til að afnema
þær takmarkanir sem hafa verið valdar skaltu velja Ógilda. Til að kanna hvort
símtölin eru útilokuð skaltu velja Athuga stöðu. Til að breyta lykilorði
útilokunar skaltu velja Breyta lykli f. útilok.. Til að hætta við allar virkar
útilokanir skaltu velja Ógilda all. útilokanir.

Útilokun og flutningur símtala getur ekki verið virkt samtímis.

Þegar símtöl eru útilokuð getur samt verið hægt að hringja í tiltekin opinber neyðarnúmer.