Nokia 5500 Sport - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi: Þau eru notuð til að staðfesta uppruna
hugbúnaðar.

Til að skoða lista yfir heimildavottorð sem vistuð hafa verið í símanum skaltu velja
Valmynd > Verkfæri > Stillingar > Öryggi > Vottorðastjórnun. Til að skoða lista
yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar, skaltu skruna til hægri.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru vefsvæði eða
fjartengdum miðlara vegna aðgerða sem fela í sér sendingu trúnaðarupplýsinga.
Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum
hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og
settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið
öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að
vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð
eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn Útrunnið vottorð eða Ógilt vottorð birtist þó
að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning er
á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega megi treysta
eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

background image

64

Upplýsingar um vottorð skoðaðar og sannvottun könnuð

Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar búið er að kanna undirskrift
og gildistíma miðlaravottorðsins.

Síminn lætur þig vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef ekki er rétt
öryggisvottorð í símanum.

Til að sjá upplýsingar um vottorð skaltu skruna að því og velja Valkostir > Upplýs.
um vottorð
. Þegar upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins kannað
og ein eftirfarandi athugasemda getur birst:

Vottorð útrunnið — gildistími vottorðsins er útrunninn.

Vottorð ekki enn gilt — valda vottorðið hefur ekki enn tekið gildi.

Vottorð skemmt — ekki er hægt að nota vottorðið. Hafðu samband við útgefanda
vottorðsins.

Vottorði ekki treyst — ekkert forrit notar vottorðið.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega
megi treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Skrunaðu að heimildarvottorði og veldu Valkostir > Stillingar f. traust. Listi, sem
fer eftir vottorðinu sem valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það.