
■ Raddskipanir
Þú getur hringt í tengiliði og notað valmyndir símans með því að bera fram
raddskipanir.
Til að ræsa aðgerðir símans með raddskipunum skaltu velja Valmynd > Verkfæri >
Raddskip.. Raddskipanir til að skipta um snið eru í möppunni Snið.
Til að ræsa nýja raddskipun fyrir forrit skaltu velja Valkostir > Bæta við forriti
og forritið.
Til að halda utan um raddskipanirnar skaltu skruna að aðgerð og velja Valkostir
ásamt einhverju af eftirfarandi:
Breyta skipun eða Fjarlægja forrit — til að breyta raddskipun valinnar aðgerðar
eða gera hana óvirka.
Spila raddskipun — til að spila raddskipunina.
Upplýsingar um notkun raddskipana er að finna í „Raddstýrðar hringingar“
á bls. 21.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða
í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Til að breyta stillingum raddskipunar skaltu velja Valkostir > Stillingar og úr
eftirfarandi valkostum:
Hljóðgervill — til að gera hljóðgervilinn, sem ber fram þekktar raddskipanir, virkan
eða óvirkan.
Núllstilla raddaðlögun — til að núllstilla raddaðlögun. Síminn aðlagar sig rödd
notandans til að eiga auðveldara með að þekkja raddskipanirnar.

55