Nokia 5500 Sport - Gagnaflutningur

background image

Gagnaflutningur

Með Gagnaflutningur er hægt að afrita eða samstilla tengiliði, dagbókarfærslur
og jafnvel önnur gögn, svo sem hreyfimyndir og myndir um Bluetooth eða
innrauða tengingu úr samhæfum síma. Ef bæði tækin eru með Bluetooth og
innrautt tengi er mælt með því að Bluetooth sé frekar notað.

Það fer eftir hinum símanum hvort samstilling er möguleg og hvort aðeins sé
hægt að afrita gögn einu sinni.

Til að flytja eða samstilla gögn:

1. Þegar innrauð tenging er notuð skal staðsetja tækin þannig að innrauðu

gáttirnar snúi hvor að annarri og gera tenginguna virka í báðum tækjunum.

Veldu Valmynd > Verkfæri > Flutningur. Þegar Gagnaflutningur er notaður
í fyrsta sinn birtast upplýsingar um forritið á skjánum. Veldu Halda áfram til að
hefja gagnaflutning.

Hafir þú notað Flutning áður skaltu velja Flytja gögn.

2. Veldu hvort nota skal Bluetooth eða innrauða tengingu til að flytja gögnin.

Para þarf símana til að hægt sé að flytja gögn um Bluetooth.

Það fer eftir gerð hins símans hvort forrit er sent og sett upp á honum svo að
hægt sé að flytja gögn. Farið eftir leiðbeiningunum.

3. Veldu hvaða efni þú vilt láta flytja í símann þinn.

4. Efnið er flutt í símann. Flutningstíminn fer eftir því hve mikið af gögnum er

flutt. Hægt er að stöðva flutning og halda honum áfram síðar.