Umreiknun eininga
Til að umreikna gjaldmiðla verður þú fyrst að tilgreina gengið. Sjá
„Grunngjaldmiðill og gengi skráð“ á bls. 50.
1. Skrunaðu að reitnum Gerð og styddu á skruntakkann til að fá upp lista yfir
mælieiningar. Skrunaðu að mælieiningunni sem þú vilt nota og veldu Í lagi.
2. Skrunaðu að fyrsta Eining-reitnum og styddu á skruntakkann til að fá upp lista
yfir tiltækar einingar. Veldu eininguna sem þú vilt umreikna úr og síðan Í lagi.
3. Skrunaðu að næsta Eining-reit og veldu eininguna sem þú vilt umreikna í.
4. Skrunaðu að fyrsta Magn-reitnum og sláðu inn gildið sem þú vilt umreikna.
Hinn Magn-reiturinn breytist sjálfkrafa og sýnir umreiknaða gildið.
Styddu á # til að bæta við aukastaf og á * fyrir +, - (fyrir hitastig) og E (veldisvísir)
merki.
Röð umreikningsins breytist ef þú slærð inn gildi í síðari Magn-reitinn. Útkoman
birtist í fyrsta Magn-reitnum.