Grunngjaldmiðill og gengi skráð
Áður en þú getur umreiknað gjaldmiðil þarftu að velja grunngjaldmiðil (yfirleitt
gjaldmiðill heimalands notenda) og tilgreina gengi.
Gildi grunngjaldmiðilsins er alltaf 1. Grunngjaldmiðillinn ákvarðar gildi
umreikningsins fyrir aðra gjaldmiðla.
1. Veldu Gjaldmiðill sem tegund mælieiningar og veldu Valkostir >
Gengisskráning. Listi yfir gjaldmiðla opnast og grunngjaldmiðillinn birtist
þar efstur.
2. Ef skipta á um grunngjaldmiðil er skrunað að gjaldmiðlinum (yfirleitt
heimagjaldmiðillinn) og valið Valkostir > Nota s. gr. gjaldm..
3. Bættu við gengi, skrunaðu að gjaldmiðlinum og sláðu inn nýtt gengi
(þ.e. hversu margar einingar af gjaldmiðlinum samsvara einni einingu
af grunngjaldmiðlinum sem þú valdir).
4. Eftir að þú hefur slegið inn nauðsynlegar gengisskráningar getur þú umreiknað
gjaldmiðla. Sjá „Umreiknun eininga“ á bls. 50.
51
Til athugunar: Þegar grunngjaldmiðli er breytt verður að færa inn nýjar
gengistölur þar sem allar fyrri gengistölur eru hreinsaðar.