Nokia 5500 Sport - Þemu

background image

Þemu

Hægt er að breyta útliti símaskjásins með því að virkja þema. Þema getur
innihaldið veggfóður og rafhlöðusparnað. Hægt er að breyta þema til að sérsníða
símann enn frekar.

background image

47

Veldu Valmynd > Eigin forrit > Þemu. Þá má sjá lista yfir þemu í boði. Það þema
sem er virkt er auðkennt með gátmerki.

Til að forskoða þema skaltu skruna að því og velja Valkostir > Skoða áður og skoða
þemað. Veldu Gera virkt til að þema verði virkt. Til að virkja þemað án þess að
forskoða það skaltu velja Valkostir > Gera virkt á aðalskjánum.

Þema breytt:
1. Skrunaðu að þema, veldu Valkostir > Breyta og síðan úr eftirfarandi:

Veggfóður — til að velja mynd úr einu af þemunum eða eigin mynd úr galleríinu
til að nota sem bakgrunnsmynd þegar síminn er í biðham.

Rafhlöðusparnaður — til að velja hvað sést á stiku rafhlöðusparnaðarins: tími
og dagsetning eða texti. Hægt er að stilla tímann þar til rafhlöðusparnaðurinn
verður virkur. Sjá „Sími“ á bls. 57.

2. Skrunaðu að atriðinu sem á að breyta og styddu á skruntakkann.

3. Til að forskoða atriðið skaltu velja Valkostir > Skoða áður. Ekki er hægt

að forskoða öll atriði. Veldu Valkostir > Stilla til að gera stillingu virka.

Til að virkja aftur upphaflegar stillingar þema skaltu velja Valkostir > Velja
upphafsþema
þegar þú breytir því.