Nokia 5500 Sport - Samskipanastillingar

background image

Samskipanastillingar

Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, spjall, kallkerfi, tölvupóstforrit,
samstillingu, straumspilun og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar
í símanum. Síminn kann að setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra,
margmiðlunarboð, aðgangsstað og straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem
notað er. Stillingarnar er einnig hægt að fá í samskipanaboðum og þá þarf að vista
þær í símanum. Nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni eða næsta
viðurkennda söluaðila Nokia.

Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og
virkjaðar sjálfkrafa, birtist 1 ný skilaboð á skjánum. Veldu Sýna til að opna
skilaboðin. Veldu Valkostir > Vista til að vista stillingarnar. Ef síminn biður um
PIN-númer fyrir stillingar: skaltu slá inn PIN-númerið fyrir stillingarnar og velja
Í lagi. Upplýsingar um PIN-númerið fást hjá þjónustuveitunni.

background image

15