
Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað
við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að
stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur haft áhrif
á virkni þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða
sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni.
Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.
NOTIST AF SKYNSEMI
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Símtækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
ÖRYGGISAFRIT
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í símanum.

7
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Til að hreinsa skjáinn og
fara aftur í upphafsskjáinn skaltu styðja eins oft og þarf á hætta-takkann. Sláðu
inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki
má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
■ Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 900, 1800 og
1900 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við alla notkun
þessa tækis.
Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal fylgja öllum lögum og virða
staðbundna siði auk einkalífs og lögbundinna réttinda annarra, þar á meðal höfundarréttar.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera
kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.
■ Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera
fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu
virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum símkerfum eða þörf getur verið
á sérstökum ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu.
Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga
við. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota
sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki
gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækinu kann einnig að
hafa verið sérstaklega samskipað. Þessi samskipan kann að fela í sér breytingar á
valmyndarheitum, röð valmynda og táknum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP
samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis, svo sem netvafur, tölvupóstur, kallkerfi, spjall
og margmiðlunarboð krefjast símkerfisstuðnings við þessa tækni.

8
■ Aukahlutir, rafhlöður og hleðslutæki
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki
er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3 eða AC-4 hleðslutæki. Þetta tæki
notar BL-5B rafhlöður.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur
samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll
ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar.
Nokkur holl ráð varðandi fylgibúnað og aukahluti:
•
Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
•
Þegar aukahlutur eða fylgibúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.
•
Athuga skal reglulega hvort aukahlutir fyrir bíla séu vel festir og vinni rétt.
•
Uppsetningu flókinna aukahluta í bíla skal fela fagmönnum.

9